FRAMÚRSKARANDI KONAN 2025

Þú framúrskarandi LMLP kona!

Komdu með okkur til Cannes í suður Frakklandi á ráðstefnuna:


Framúrskarandi konan 2025.

Við kynnum með stolti: Framúrskarandi konan í Cannes, Frakklandi 1.-5. mai 2025

Á „Framúrskarandi" ráðstefnuninni 2025 verður glamúr, gleði, skemmtun, hvatning og enduruppgötvun. Við fögnum hverri annarri og njótum þess að stíga inn í allt það sem er mögulegt fyrir okkur. Við munum enduruppgötva okkur.

Þið sem þekkið til ráðstefnunnar okkar vitið að hún er ógleymanleg og að þið komið heim fullar af eldmóði og með nýja trú á ykkur sjálfar. Það verður engin undantekning á því þetta árið, en lúxusinn verður meiri en áður…þetta verður algjörlega æðisleg ferð og framúrskarandi dagskrá í smíðum. 

Fyrir valinu varð lúxushótelið Martinez, það er við ströndina, verslanir og veitingastaðir í göngufæri. Þetta er sögufrægt hótel þar sem kvikmyndastjörnurnar koma og láta mynda sig fyrir kvikmyndahátíðina og dómnefnd Cannes film festival, snæðir ætíð fyrsta kvöldverðinn saman á lúxusveitingastað hótelsins, þar sem Michelinstjörnu kokkur eldar ómótstæðilega rétti. 

Og þar sem þið LMLP konur eruð stjörnur í mínum huga, fannst mér passa fullkomlega að fara með ykkur á þennan stað. Heiti ráðstefnunnar í ár er:

Vertu stjarnan í eigin lífi.

Bóka mig núna a „Framúrskarandi konan 2025"
 

5 stjörnu sögufrægt lúxushótel

Við völdum að sjálfsögðu aðeins það besta fyrir Framúrskarandi konurnar okkar. 

Einfalt. Því þið eigið það besta skilið. 

Ímyndaðu þér....
  • Hvernig væri að láta af sömu gömlu hugsununum sem halda aftur af þér, sem fylla þig af vantrú og vanmætti?.
  • Hvernig væri að þú hættir að fresta sjálfri þér, þar til einn góðan veðurdag?
  • Hvernig væri að þú hættir að dimma ljósið þitt og leyfðir því að skína eins og því var alltaf ætlað?
  • Hvernig væri að þú kæmir á „Framúrskarandi" og enduruppgötvaðir
    sjálfa þig?

Þú lærir öflugar leiðir með sjálfsvinnunni sem við gerum og þú munt enduruppgötva sjálfa þig. Þú ætlar að kynnast hliðum af þér sem þú vissir ekki að væru til staðar.

Þú vilt ekki missa af þessari mögnuðu upplifun sem framúrskarandi kona í Cannes, suður Frakklandi í mai 2025.

Hótelið okkar 2025
Þetta segja konurnar um síðustu ferð:
JÁ! Ég ætla sko með!
Dagskrá Framúrskarandi 2025

Ráðstefnan sjálf fer fram yfir tvo daga og það sem þú lærir mun gjörsamlega umbreyta því hvernig þú hugsar um þig, lífið þitt og þitt framtíðarsjálf. Þú munt enduruppgötva sjálfa þig.

Búðu þig undir skapandi verkefni, kröftuga fyrirlestra og krefjandi sjálfsvinnu. 

Dagskráin í hnotskurn…

  • 1. maí. Koma til Cannes. Kokteilboð um kvöldið. 
  • 2. maí. Framúrskarandi ráðstefna kl. 9-13. 
  • 3. maí. Framúrskarandi ráðstefna kl. 9-13. 
  • 4. maí. Frjáls dagur og valkvæðar athafnir.
    Kvöldverður
  • 5. maí. Ráðstefnu lýkur.  

Hættu að fresta sjálfri þér. Settu þig í stjórnsætið. Fjárfestu í heila þínum (besta fjárfestingin!) og vellíðan. Vertu með okkur í glamúr, gleði og framúrskarandi félagsskap.

Bóka mig. Ég ætla ekki að missa af þessari ferð ✓ ✓ ✓
Hér er allt sem þú þarft að vita
Framúrskarandi 2025

Smáu (og stóru) atriðin

  • Verð
    kr. 299.000 (2ja manna herbergi) *verðþrep 1.
    kr. 399.000 (1 manns herbergi). *verðþrep 1.
    Flug er ekki innifalið og bókast sér, sjá að neðan. 
  • Greiðsla:
    Þú hefur val um að staðgreiða eða skipta greiðslu í þrennt.
      
  • Skilmálar:
    Verð hækkar eftir því sem nær dregur ráðstefnu. Það margborgar sig því að bóka strax! 
    Takmarkað pláss er á ráðstefnuna og þær sem bóka fyrst fá besta verðið.
  • *Verðþrep 1: Bókist fyrir 5. jan. Verð kr. 299.000 og 399.000.
    *Verðþrep 2: Bókist fyrir 5. feb. Verð hækkar um 15.000 kr.
    *Verðþrep 3: Bókist fyrir 5. mars. Verð hækkar um 30.000 kr.
     
  • Innifalið í verði:
    Ráðstefnugjald, hótelgisting og hálft fæði (hádegis- og morgunverður), kokteilboð og rúta til og frá flugvelli í Frakklandi (ath. rúta er innifalin fyrir þær sem bóka flugið í gegnum Heillandi heim).
    Flug er EKKI innifalið í þessu verði og bókast sér í gegnum ferðaskrifstofuna Heillandi heimur eða þú getur bókað það sjálf. Hópurinn á frátekið flug með Icelandair til Nice í Frakklandi, 1. mai kl. 08:20 og til baka til Kef. 5. mai kl. 15:40. Rúta til og frá flugvelli og á hótel er innifalið fyrir þær sem bóka flugið í gegnum Heillandi heim. Nánari upplýsingar verða sendar til þín eftir að þú hefur bókað ráðstefnuna.
     
  •  Dags:
    1. - 5. maí ( 4 nætur). 
  • Gisting 
    Gist er á 5 stjörnu hóteli, Hyatt Martinez. Val um eins eða 2ja manna herbergi. 
  •  Hálft fæði innifalið (morgun- og hádegisverður). 
    Greitt aukalega fyrir lokakvöldverð við komu á hótelið.
     
    Heimför:
    Rúta er innifalin fyrir þær sem bóka flugið með hópnum í gegnum ferðaskrifstofuna Heillandi heimur:
    5.maí, rúta frá hóteli á flugvöll. 
    5.maí, síðdegisflug til Íslands.
    Beint flug til og frá Íslandi.
     
    Ath. Þær sem hafa greitt 15.000 kr. forskráningargjald fá það endurgreitt 4 vikum fyrir brottför.
     
Ég ætla með til Frakklands!
Í fyrra var ferðin hreint út sagt mögnuð. Og í ár verður hún ekkert minna en framúrskarandi!
LÆRDÓMUR
SÓL OG SJÓR
FÉLAGSSKAPUR
GLEÐI OG GLAMÚR
Skráðu þig í ferðina strax í dag áður en allt fyllist!
Við bjóðum uppá greiðsludreifingu
Skrá mig núna ✓
Spurningar og svör
Þú ert örugglega að spyrja þig að þessu
Skráðu þig strax í dag til að festa plássið þitt
Smelltu á hnapp að neðan til þess að skrá þig!
JÁ! Ég vil skrá mig á framúrskarandi 2025 ✓