
Byggðu upp feril sem breytir lífum og skapar varanlegt frelsi
með námi í fremsta lífsþjálfaskóla Íslands

Ímyndaðu þér að byggja upp feril sem gefur þér frelsi, tilgang og getu til að breyta lífum —
byrjaðu á þínu eigin.
Velkomin í Lífsþjálfaskólann: Fyrsta og eina íslenska lífsþjálfanámið á Íslandi,
undir forystu Lindu Pétursdóttur, master lífsþjálfa (e.Master Life Coach).
Á aðeins fjórum mánuðum muntu ná tökum á listinni að þjálfa aðra, hefja blómlegan feril
eða stofna fyrirtæki og breytast í sjálfsöruggustu og kraftmestu útgáfuna af þér.
Framtíð þín sem lífsþjálfi og leiðtogi hefst núna.

Á ÞETTA VIÐ UM ÞIG?
→ Þú þráir dýpri tilgang í starfi þínu og vilt hjálpa fólki að yfirstíga hindranir og láta drauma sína rætast, hvort sem það er þitt eigið teymi eða viðskiptavinir þínir.
→ Þig hefur dreymt um að mennta þig sem lífsþjálfi og langar að fara í virt nám sem er kennt á þínu eigin móðurmáli.
→ Þú veist að þér var ætlað eitthvað meira og ert tilbúin/n að fjárfesta í framtíð sem þar sem þú færð að nýta hæfileika þína til fulls.
Ef þú svaraðir einhverjum spurningunum „JÁTANDI!“ ertu akkúrat manneskjan sem við hönnuðum námið fyrir.
Við kynnum:
Nám í Lífsþjálfaskólanum
Fjögurra mánaða fjarnám undir forystu þekktasta lífsþjálfa Íslands – hannað fyrir einstaklinga sem eru tilbúnir til að umbylta eigin lífi og annarra.
Þegar þú skráir þig í Lífsþjáfaskólann muntu:
Öðlast fullkomið vald á lífsþjálfahæfileikum þínum
Fá í hendur öll verkfærin sem þú þarft til að hefja ferilinn
Umbylta lífi þínu bæði persónulega OG faglega

Öðlast fullkomið vald á lífsþjálfahæfileikum þínum
Lærðu þrautreyndar aðferðir til að hjálpa viðskiptavinum,
og teyminu þínu, að vinna ótrúleg afrek.
Fá í hendur öll verkfærin
sem þú þarft til að
hefja ferilinn
Aflaðu þér menntunar og stígðu af öryggi inn í feril þinn sem lífsþjálfi eða beittu því sem þú lærir á núverandi starfsferil/fyrirtæki til að hefja það upp á næsta stig.


Umbylta lífi þínu bæði
persónulega OG faglega
Stígðu skrefið í átt að sterkari og djarfari útgáfu af þér og náðu nýjum hæðum í persónulegum vexti.
*Námið er alfarið kennt í fjarkennslu á netinu frá
20. ágúst 2025 til 30. janúar 2026
Vitnisburður

,,Snilldarnám sem fór langt fram úr mínum væntingum. Mikil sjálfsskoðun og góð umbreyting á eigin sjálfsmynd á þeim hraða og þeirri dýpt sem ég valdi að vinna á.
Nám sem allir ráða við og hverrar krónu virði."
-Ester Hjartardóttir
,,Námið hefur styrkt mig bæði persónulega og sem nýútskrifaður lífsþjálfi. Ég hef lært að sýna sjálfri mér meiri mildi og virðingu og fengið dýrmætan grunn til að geta haldið
rými fyrir aðra.
Ég mæli innilega með þessu námi fyrir alla sem vilja vaxa og starfa sem lífsþjálfar."
-Lilja Björg Kjartansdóttir

Af hverju ættirðu að velja Lífsþjálfaskólann?
Lærðu af vinsælasta lífsþjálfa Íslands
Linda Pétursdóttir hefur varið yfir 30 árum í að styrkja aðra með þjálfun, forystuhæfileikum og ráðgjöf. Linda, sem er fyrrverandi Ungfrú heimur og virtur áhrifavaldur í lífsþjálfafræðum, býður upp á fágæta blöndu af lífsreynslu, heimspekimenntun og þrautreyndum árangri í lífsþjálfun.


Persónulegt utanumhald
og endurgjöf
Þetta er engin fjöldamarkaðsmenntun. Linda leiðbeinir nemendum persónulega með lifandi sýnikennslu, hópumræðum og kennslulotum á netinu.
Menntaðu þig á þínu eigin móðurmáli
Engar ruglingslegar þýðingar eða tungumálahindranir – þetta nám er að fullu kennt á íslensku og er því hið eina sinnar tegundar.


Skráðu þig í samfélag sem styður við þig
Umkringdu þig öðrum leiðtogum, frumkvöðlum og metnaðarfullu fagfólki sem vex þér við hlið, styður og skorar á hvert annað. Byggðu upp sambönd sem geta leitt af sér framtíðarsamstarf og ævilöng tengsl.

,,Mæli hiklaust með Lífþjálfaskóla Lindu Pé.
Námið er yfirgripsmikið og farið djúpt í hugsanavinnu, tilfinningavinnu og sjálfsþjálfun.
Þú upplifir miklar breytingar á þínu lífi að námi loknu og öðlast trú og staðfestu og ég vil fara svo langt að segja: þú verður betri í lífinu"
-Anna Jónsdóttir
Við kynnum leiðbeinandann þinn,
Lindu Pétursdóttur:
Linda Pétursdóttir er Master Life Coach og stofnandi og eigandi LMLP, stærsta lífsþjálfunarprógramms á Íslandi ásamt Lífsþjálfaskólanum. Síðustu þrjá áratugina hefur hún helgað sig því að valdefla aðra, hjálpa þeim að byggja upp öflugt sjálfstraust, komast yfir hindranir, ná markmiðum sínum og verða óstöðvandi afl í eigin lífi.
Linda umbylti sínu eigin lífi úr því að vera einstæð móðir á leiðinni í gjaldþrot yfir í að vera eigandi gríðarlega farsæls fyrirtækis og brautryðjandi í íslensku lífsþjálfasamfélagi.
Nú hefur kennsla hennar umbreytt lífi hundruð kvenna á Íslandi og hún er tilbúin að deila þekkingu sinni með þér þegar þú tekur næsta skrefið á vegferð þinni til að verða menntaður lífsþjálfi frá Lífsþjálfaskólanum.
Nokkrir punktar um námið:

Þegar þú skráir þig færðu aðgang að:
🎓 Áður uppteknum fyrirlestrum og lifandi hópa kennslutímum: Lærðu meginreglur lífsþjálfunar og fylgstu með sýnikennslu í rauntíma.
🎓 Vikulegri þjálfun: Byggðu upp sjálfstraust og færni með því að beita aðferðum undir handleiðslu Lindu.
🎓 Sérstakri netgátt: Tólf mánaða aðgangur að námskeiðsgögnum, vinnubókum, upptökum og aukaefni, á netinu.
🎓 Sérhannaður „masterclass" í viðskiptum: Lærðu grundvallaratriði þess að stofna og stækka þitt eigið lífsþjálfafyrirtæki.
🎓 Skírteini við útskrift: Fáðu útskriftarskírteini sem lífsþjálfi frá fremsta lífsþjálfaskóla landsins.

,,Nám í lífsþjálfun er sérstaklega hagnýtt og gott nám sem ég mæli 100% með, það mun gera þig betri í hverju því sem þú tekur þér fyrir hendur því það er í raun nám í lífinu.
Þekking og færni í lífsþjálfun getur nýst þér sem starfandi lífsþjálfi, í núverandi vinnu, sérstaklega ef þú vinnur við mannauðsmál eða sem stjórnandi, eða einfaldlega til að skapa þér sjálfri betra líf og læra að fara á eftir draumum þínum."
-Matthildur Helgadóttir Jónudóttir
,,Lífsþjálfaskólinn er nám sem allt fólk ætti að fara í gegnum til þess að bæta lífsleikni sína og skilning á sínu innra sjálfi.
Þetta er nám sem nýtist á öllum sviðum lífsins, persónulega, starfslega, fjárhagslega, félagslega og í uppeldi og samskiptum við nánustu fjölskyldu.
Þetta er umbreytandi vinna í hugsunum, tilfinningum, hegðun og löngunum okkar og kennir okkur að beina lífinu meðvitað í þann farveg sem þráum."
-Ásta Hrönn Harðardóttir


,,Nám í Lífsþjálfaskólanum mun opna svo margar dyr í lífi þínu að það mun vera erfitt að velja hverjar þú átt að fara í gegnum .
Námið er bæði skemmtilegt, mjög áhugavert, vel sett fram en jafnframt krefjandi og gefandi.
Þú gefur þér dýrmæta gjöf og ný tækifæri í lífinu með því að fara í Lífsþjálfaskólann. Það er eitthvað sem verður aldrei frá þér tekið."
-Margrét Sigmundsdóttir
,,Námið í Lífsþjálfunarskólanum fór fram úr mínum björtustu vonum.
Ég fór frá því að vera með stöðugan sjálfsefa & með mikinn innri óróa yfir í sjálfsörugga konu sem upplifir innri frið. Sit alveg ofboðslega vel í sjálfri mér og er loksins komin með verkfærin til að halda mér þar áfram. Ég er lifandi dæmi þess að fræðin virka.
Hvort sem þú ætlar að nýta þér þetta til persónulegrar uppbyggingar eingöngu, sem inngang að nýjum starfsframa eða styðja við þann núverandi þá get ég heilshugar mælt með þessu námi."
-Jóhanna Sól Haraldsdóttir


,,Linda er frábær kennari.
Allt námsefni og utanumhald upp á 10, svo fallega fram sett og skýrt.
Og svo kynnist maður svo flottum konum í leiðinni”
-Kristín Ágústsdóttir
,,Ég mæli hiklaust með Lífsþjálfaskólanum.
Þetta nám er lykilinn að öllu sem þú þarft.”
-Helga Hreinsdottir

Skráðu þig strax og nældu þér í
snemmskráningarkaupaukana okkar:

Skráðu þig snemma og þú færð líka:
Lengri greiðslutíma: Sveigjanlegri greiðslumöguleikar í allt að 4 mánuði gera skráninguna enn þægilegri.
Sérstakan hópatíma með Lindu: Fáðu aukatíma í þjálfun og starfsráðgjöf og spurðu spurninga, á fjarfundi í beinni þann
6. júní kl. 12:00.
Snemmbúinn aðgang að námsefninu: Byrjaðu vegferðina strax með snemmbúnum aðgangi að lotu 1. svo þú getir byrjað að fara í gegnum efnið fyrir einkahópatímann með Lindu.
F j á r f e s t i n g i n :
Fullt verð
1,290,000 ISK
(Greiðsludreifing).
Skipta greiðslum í fernt.
Skráðu þig fyrir 5. júní n.k,
skiptu greiðslum í fernt
+ fáðu kaupauka!
INNIFALIÐ:
-
4 mánaða nám
-
16 kennslulotur
-
Hópatímar í beinni á netinu
-
KAUPAUKI: Snemmbúinn aðgangur að lotu eitt, frá 6. júní
-
KAUPAUKI: Sérstakur fjarfundur með Lindu 6. júní
kl. 12:00
Snemmskráningar-
afsláttur!
990,000 ISK
(Eingreiðsla).
Skráðu þig fyrir 5. júní n.k
sparaðu 300,000 ISK
+ fáðu kaupauka!
INNIFALIÐ:
-
4 mánaða nám
-
16 kennslulotur
-
Hópatímar í beinni á netinu
-
KAUPAUKI: Snemmbúinn aðgangur að lotu eitt, frá 6. júní
-
KAUPAUKI: Sérstakur fjarfundur með Lindu 6. júní
kl. 12:00
Varanlega breytingin byrjar NÚNA …
Nám við Lífsþjálfaskólann gefur þér tækifæri til að byggja upp líf og feril umfram það
sem þú taldir vera mögulegt.
Með því að mennta þig sem lífsþjálfi á aðeins fjórum mánuðum:
Ertu komin með réttindi til að ráða þig í sérfræðistörf sem lífsþjálfi hjá fyrirtækjum, heilsumiðstöðvum eða þjálfunarsamtökum (sem mörg hver krefjast virts náms).
Færðu aukið traust þegar þú sækir um stjórnunarstörf og störf í mannauðs- eða starfsþróunarmálum innan fyrirtækja.
Geturðu sett upp hærra gjald en ómenntaðir lífsþjálfar.
Uppfyllir þú kröfur sem til þarf til að fá þjálfunarsamninga í fyrirtækjum (mörg fyrirtæki sækjast eftir lífsþjálfum fyrir leiðtoga- og starfsþróunarverkefni).
Geturðu farið í samstarf við meðferðaraðila, lækna eða heilsumiðstöðvar sem vísa viðskiptavinum sínum til menntaðra lífsþjálfa.
Geturðu skipað þér í hóp með sérfræðifyrirlesurum á vinnustofum, í hvíldarmeðferðum eða jafnvel þjálfunarviðburðum hjá fyrirtækjum.
Í Lífsþjálfaskólanum kennum við þér ekki bara hvernig á að verða lífsþjálfi; við kennum þér hvernig þú nærð árangri. Námið sem við bjóðum er hannað til að auka færni þína með verkfærum, aðferðum og hugarfari sem þú þarft til að skapa varanlegar breytingar á lífi þínu
og lífi viðskiptavina þinna.
Ég er tilbúin/n – kýlum á þetta!

,,Þetta nám er búið að breyta lífi mínu á mjög jákvæðan hátt. Ég er búin að henda handbókinni um annað fólk, ég leyfi fólki að vera eins og það er og reyni ekki að breyta því.
Ég er farin að elska alla í kringum mig, ég er búin að átta mig á að ég ræð öllum niðurstöðum í mínu eigin lífi.
Ég get allar tilfinningar.
Ég er ekki hrædd við að gera mistök og ef ég geri mistök þá læri ég af þeim og reyni að gera mistök aftur.
Ég er orðin leiðtogi í eigin lífi og ég er orðin besta útgáfan af sjálfri mér."
-Kristín Steingrímsdóttir
Algengar spurningar
Þarf ég reynslu til að fá inngöngu?
Hvað ef ég vil ekki vera lífsþjálfi í fullu starfi?
Hversu mikill tími fer í námið á viku?
Fer öll kennsla fram á netinu?
Fæ ég vottun?
Hvenær hefst námið og hvenær lýkur því?

Byggðu upp feril sem breytir lífum og skapar varanlegt frelsi
með námi í fremsta lífsþjálfaskóla Íslands
