Skilmálar aðildarprógrammsins „Lífið með Lindu Pé“.
S34 ehf. og Linda Pétursdóttir.
Almennt
S34 ehf. áskilur sér rétt til að fella úr gildi pantanir vegna mistaka við verðskráningu, ennfremur ef vara eða þjónustu hættir, án fyrirvara.
Kaupandi skuldbindur sig til að greiða vöru og þjónustu að fullu. Komi til greiðslufalls áskilur S34 ehf. og Linda Pétursdóttir sér rétt til þess að sækja greiðsluna með lögboðnum leiðum.
Afhending vöru/þjónustu
Öll vefprógrömm eru afgreidd næsta virka dag frá pöntun svo framarlega sem opið er fyrir nýskráningar. Ef ekki, þá opnast aðgangur kaupanda samkvæmt dagsetningu á heimasíðu við kaup.
Gildistími
Aðgangur að lokuðu vefsvæði prógrammsins og kennslugögnum þess, lokaðri prívat Facebookgrúppu gildir meðan greiðslur eru í skilum og aðild að prógramminu þar með virk.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Vefprógrömm eru aldrei endurgreidd.
Verð
Vinsamlegast athugaðu að verð á nýskráningu í prógrammið getur breyst án fyrirvara, en svo framarlega sem þú ert virk og í skilum, heldur þú því verði, óbreyttu, sem þú komst inn á.
Innskráningargjald er aðeins greitt þegar aðild hefst og svo framarlega sem þú ert virk og greiðslur í skilum, greiðir þú það ekki aftur. Hinsvegar hafir þú sagt upp aðild og viljir byrja aftur síðar, greiðist innskráningargjald aftur.
Úrsögn
Þú getur hætt hvenær sem er í prógramminu, en úrsögn skal vera skrifleg og sendist á netfang [email protected]. Úrsögn skal berast fyrir 15. hvers mánaðar til þess að hún taki gildi um næstu mánaðarmót þar á eftir. Berist hún eftir 15. dags mánaðar, færist úrsögnin aftur um einn mánuð.
Trúnaður seljanda
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Trúnaður kaupanda
Öll gögn og efni prógrammsins „Lífið með Lindu Pé“ eru eign félagsins S34ehf og Lindu Pétursdóttir. Allt efni er eingöngu fyrir persónulega notkun kaupanda. Það er með öllu óheimilt að deila öllu efni sem kaupandi fær aðgang að, hvort sem um ræðir að hluta til eða heild. Eignaréttur kemur skýrt fram á öllum skjölum sem kaupandi hefur aðgang að í prógramminu og fylgja reglur eignaréttar samkvæmt því. Ef kaupandi brýtur á eignarétti flokkast slíkt brot undir þjófnað og viðkomandi afsalar með því rétti sínum í prógramminu „Lífið með Lindu Pé“ og verður meinaður frekari aðgangur og þátttaka. Engu að síður er kaupandi bundinn til að greiða fyrir þjónustuna að fullu.
Frekari spurningar
Hafir þú frekar spurningar, vinsamlegast hafðu samband á netfang [email protected]
Allur réttur áskilinn
Ekki má dreifa efni þessu með neinum hætti nema með skriflegu leyfi höfundar.