SKRÁNINGU Í LMLP LÝKUR EFTIR
00
DAYS
00
HOURS
00
MINS
00
SECS
LJÓS OG SKUGGAR MEÐ LINDU PÉ
settu inn nafn og netfang til að horfa hér að neðan.
Allt sem þú þarft að læra til að bæta líf þitt
lærirðu í LMLP
Ég hannaði prógramm til að hjálpa þér að bæta líf þitt.
Það er algjörlega magnað.
Þú finnur það hvergi annars staðar.
Það virkar.
Ég er með mörg hundruð viðskiptavini sem staðfesta það.
Hvað er það?
Það heitir Lífið með Lindu Pé (LMLP).
Þetta er prógramm fyrir konur sem vilja styrkja sjálfsmynd sína, losa sig við aukakílóin og bæta líf sitt.
Þú lærir aðferð til að búa til nýjar niðurstöður í lífi þínu og láta markmið þín rætast.
Þegar þú gerir þessa spennandi sjálfsvinnu þá geturðu breytt hverju sem er í eigin lífi.
Og orðið sú kona sem þú vilt verða.
Þú verður óstöðvandi!
Margar okkar fara í gegnum lífið og gera það sem okkur hefur verið sagt að gera.
Við höfum ekki fengið réttu verkfærin til að breytast og þá meina ég að breytast raunverulega.
Þar til núna.
Allt sem þú þarft að læra til að bæta líf þitt lærirðu í LMLP (Prógramminu Lífið með Lindu Pé).
Þú verður óstöðvandi.
Allt sem þú þarft til að bæta líf þitt lærirðu hér.
-Þú verður óstöðvandi
Með sérþekkingu minni og reynslu hef ég tekið saman hvert einasta atriði sem þú gætir þurft á að halda til að breyta lífi þínu, og hannað úr því þetta prógramm. Svo verðlagði ég það mjög sanngjarnt þannig að samkeppnin er engin.
Sjáðu þetta fyrir þér:
Þú lærir aðferð til að hafa stjórn á heilanum í þér, tilfinningum og gjörðum.
Vikulegir fjarfundir í beinni þar sem þú færð aðstoð, fræðslu og lífsþjálfun.
Aðgangur að rituðum spurningum og svörum á innri vef.
Upptökum af öllum fundum síðustu 12 mánuði.
Og ekki nóg með það heldur færðu líka aðgang að... öðrum námskeiðum mínum. Hvert þeirra kostar tugi þúsunda. Þú færð þau innifalin í LMLP.
Þetta færðu allt á aðeins 13.900 kr. Þú getur verið með okkur í lágmark 3 mánuði eða nokkur ár (eins og tugir viðskiptavina okkar gera).
Efnið sem þú færð aðgang að er langt umfram það sem þú borgar fyrir. Þetta er einfaldlega ómótstæðilegt verð miðað við allt efnið sem þú færð. Það er ekkert annað prógramm á Íslandi sem jafnast á við þetta.
Ómótstæðilegt verð.
-Ómótstæðilegt prógramm.
Markmið mitt er að fara fram úr væntingum þínum.
Ég er handviss um að þetta prógramm mun gera það.
Öll önnur námskeiðin mín sem fylgja frítt með LMLP prógramminu eru til sölu á heimasíðunni minni, ein og sér, eða þú getur fengið allan pakkann innifalinn í LMLP á nákvæmlega sama verði. Sumsé öll þau námskeið innifalin í þessu. Þetta er engin spurning.
Þú færð aðgang að námskeiðum fyrir hundruði þúsunda með því að skrá þig í aðild. Þetta er besta fjárfestingin sem þú gerir í sjálfri þér.
Þú mátt endilega gera samanburð á þessu tilboði og öðrum sambærilegum námskeiðum á netinu.
Þú getur líka borið árangur viðskiptavina/kvennanna minna saman við árangur annarra prógramma.
Það er ekkert sem jafnast á við hann.
Þess vegna erum við í LMLP bestar í því sem við gerum.
Ég er kona sem gerði breytingar á eigin lífi.
Ástríða mín er að hjálpa öðrum konum að gera slíkt hið sama, og lifa draumalífinu sínu.
Ég er lifandi dæmi um allt það sem er mögulegt.
Og í LMLP kenni ég þér hvernig þú finnur þína lausn og ferð að lifa draumalífinu þínu.
Nú er komið að þér.
Master lífsþjálfi.
B.A í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði.
Ungfrú Heimur.
Markmið mitt er
-að fara fram úr væntingum þínum!
Skilaboð til þín, frá Lindu
Hvað er sjálfsmynd?
Sjálfsmynd þín er mynd sem þú býrð til í hugskoti þínu og heimurinn endurvarpar svo aftur til þín. Hún ákvarðar hvernig þú umgengst aðra, markmiðin sem þú setur þér, fötin sem þú velur, staðina sem þú ferð á, tekjurnar þínar, hvernig þú eyðir þeim, hvernig þú ferð með líkamann þinn, með hvernig fólki þú ferð á stefnumót og giftist … Og svo margt fleira!
Þú lærir hvernig þú ferð að því að breyta sjálfsmynd þinni svo þú getir breytt öllu lífi þínu.
→ Í LMLP þá tölum við ekki bara um breytingar, við verðum breytingarnar holdi klæddar með því hvernig við mætum til leiks, með þeim ákvörðunum sem við tökum daglega og með þeim hugsunum sem við veljum að hugsa. Og heimurinn endurvarpar sjálfsmynd okkar aftur til okkar.
Sjálfsmynd þín skapar alla umgjörð lífs þíns.
Þegar þú breytir því hvernig þú lítur á sjálfa þig endurspeglast það frá heiminum í kringum þig.
ERTU TILBÚIN AÐ?
Líta betur út?
Líða betur?
Lifa betur?
Hvar vilt þú vera stödd ár héðan í frá?
Þessar konur tóku ákvörðun og taka þátt í LMLP prógramminu í hverjum mánuði.
Og þær uppskera árangur.
Sjáðu hvað konurnar segja!
Ásta Kristín Björnsson, 69 ára kennari
á eftirlaunum
„Þegar ég byrjaði var áherslan þyngdartap og að tileinka sėr grunnreglurnar fjórar. Ég hef upplifað og lært svo ótal margt annað en bara það sem varðar þyngdartap því í prógramminu LMLP er líka lögð áhersla á mikla vinnu með sjálfsmyndina.
Það væri of langt mál að telja upp allt sem ég hef lært ogunnið með í LMLP því Linda kemur inn á svo marga og spennandi þætti. En ef ég ætti að nefna nokkur atriði sem hafa gildi fyrir mig og hafa gert mikið fyrir mig er það þessi mikla vinna með hugsanir; að vera meðvituð um hvernig þær hafa áhrif á líðan mína og hvað ég geri eða geri ekki og hvernig ég get breytt hugsunum ef þær eru ekki að þjóna mér.
Líka það að sýna mér kærleika og mildi, taka ábyrgð á líðan minni, standa með mér, sinna mér og taka frá tíma fyrir sjálfsrækt. Dreyma stóra drauma, rækta draumana mína og stækka sjóndeildarhringinn.
Skipulagning og markmiðasetning er það sem mér finnst skemmtilegast að vinna með núna. Ég var ágætlega skipulögð en það sem Linda hefur kennt okkur í LMLP hefur sett þessa þætti hjá mér á miklu hærra plan.
Linda hefur það að markmiði að fara fram úr okkar björtustu vonum
og það hefur henni sannarlega tekist.“
Edda Guðsteinsdóttir, 53 ára, starfar í fiskvinnslu
„Ég hef upplifað miklar breytingar hjá mér, bæði andlega og líkamlega. Ég setti mér það markmið að léttast um 10 kíló en þau eru orðin 16 þannig að þetta hefur farið fram úr mínum björtustu vonum.
LMLP var bara akkúrat það sem mig vantaði í líf mitt. Mér hefur fundist þetta skemmtilegt og fræðandi frá fyrsta degi, sjálfsmynd mín hefur batnað mjög mikið, ekki veitti nú af, og þar ætla ég að bæta mig enn frekar.
Líf mitt hefur einfaldlega allt breyst til hins betra; ég hef náð mjög góðum tökum á mínum matarvenjum með því að skrifa niður matarplan fyrir daginn á hverjum morgni og fara eftir því. Ég er duglegri að skipuleggja mig og setja mér markmið. Svo hlusta ég flesta daga á einhvern fróðleik á innri vef LMLP. Það er einmitt svo gott að geta hlustað þegar mér hentar og allt í prógramminu er svo vel skipulagt og aðgengilegt.
Þetta er líka bara svo frábær félagsskapur að vera í, með þessum konum. Takk fyrir mig!“
Ef þú vilt árangur eins og þessar konur, hoppaðu þá um borð núna!
Sjáumst inn í LMLP prógramminu
Nú er komið að þér!
Gefðu sjálfri þér þessa gjöf. Þetta er það besta sem þú gerir fyrir þig.
Þú munt uppskera spennandi breytingar; bætt sjálfsmynd, færri aukakíló og það er bara byrjunin!
Það er ekki eftir neinu að bíða, þú velur annaðhvort mánaðargreiðslur eða eingreiðslu.
Smelltu á hnappinn hér að neðan til að skrá þig og láttu þig hlakka til að gera spennandi breytingar á eigin lífi!
Millifæra, smelltu hér.
Þú ert með spurningar, ég hef svörin
Hvernig virkar LMLP prógrammið?
Mun ég grennast?
Hversu lengi er LMLP prógrammið?
Er sérstök Facebook-grúppa?
Hvað kostar LMLP prógrammið?
Hef ég aðgang að Lindu?
Er strangt matarplan?
Fyrir hverja er LMLP prógrammið ekki?
Get ég séð hvað konurnar í LMLP segja?
Hvað er lífsþjálfun?
Linda Hlín Sigbjörnsdóttir, 58 ára,
starfar við aðhlynningu
„Ég er orðin meðvitaðri um tilfinningar mínar og er hætt að sópa þeim undir teppið. Tilfinningalegt át, sem áður háði mér mjög mikið, heyrir nú sögunni til. Ég stend með sjálfri mér, er ekki alltaf að hugsa um mat og Grunnreglurnar 4 hjálpa mikið.
Hugsanastjórnunin er magnað verkfæri og hefur kennt mér að losa mig við hugsanir sem eru ekki að þjóna mér. Ég er orðin meðvituð um hvort hungrið sé tilfinningalegt eða líkamlegt.
Sjálfstraustið mitt hefur aukist til muna með vinnu minni í LMLP og ég hef ég áttað mig á því að ég er falleg kona og greind, sem ég trúði ekki áður. Ég var búin að telja sjálfri mér trú um að ég væri
ljót og heimsk.
Ég hef einfaldlega verið leyst úr álögum, allt vegna veru minnar, vinnu og leiðsagnar
í prógramminu LMLP.
Hér erum við allar jafnar og njótum sömu virðingar hjá Lindu. LMLP er lífsbjörg og ég hvet allar konur til að skrá sig til að bæta andlega og líkamlega heilsu til langs tíma litið. Takk fyrir mig elsku Linda, ég hlakka til áframhaldandi vinnu með þér!“
Ingunn Lára Hannesdóttir Scheving, 55 ára, hársnyrtimeistari
„Ég hef lært svo mikið með þátttöku minni í LMLP. Leiðin sem er notuð til að sjá samhengi hlutanna á skýran hátt er svo frábær; allt stendur eins og stafur á bók og árangurinn skilar sér
í samræmi við það.
Ég hef lést um 18 kíló en mér líður eins og þau séu 30. Ég er búin að læra á leiðir til að kynnast nýjum hliðum á sjálfri mér, er búin að eflast og er farin að hafa trú á getu mína og vilja.
Ég hef lært að finna styrk minn og öryggi í þeim leiðum sem Linda kennir og það er gott að vita að ég get alltaf fengið aðstoð ef ég er í vandræðum með eitthvað. Það sem stendur upp úr er að ég er komin með verkfæri í hendurnar til framtíðar.
Ég hef lært að staldra við þegar hugurinn fer á flug og get áttað mig á því sem er að rugla í mér og get leiðrétt það. Það er svo dýrmætt.
Það er eins og maður hafi verið að sigla stjórnlaus í ólgusjó en sigli inn í logn.
Ég hef aldrei kynnst svona aðferðafræði fyrr og lífsþjálfunin er frábær. Ég mæli 100% með LMLP prógramminu, hvort sem er fyrir þyngdartap eða bara til að líða vel í lífinu".
Join Our Free Trial
Get started today before this once in a lifetime opportunity expires.