SKRÁNINGU LÝKUR EFTIR
00
DAGAR
00
KLST.
00
MÍN.
00
SEK.
Þúsundir kvenna hafa farið í gegnum LMLP prógrammið og umbreytt lífi sínu
Þær ákváðu að skipta út hversdagslegri tilveru fyrir eitthvað stórfenglegra.
Að fylgja löngunum sínum og þrám, eftir að hafa árum saman sætt sig við líf sem var ekki
eins og þeim langaði að það væri.
Að elta drauma sína, í stað þess að bíða eftir að hugrekkið bankaði upp á
einn góðan veðurdag.
Að hætta að reyna að heilla aðra og fara þess í stað að njóta þess að heilla sjálfa sig.
Að segja nei við því að láta enn einn mánuðinn, vikuna eða daginn líða
– án þess að ánægja, gleði og tilgangur væru við völd.
Þetta er það sem þær völdu.
Og þetta er eitthvað sem þú getur líka valið.
Mikilvægasta sagan sem þú munt nokkru sinni segja er þín eigin.
Ert þú tilbúin að endurskrifa þína sögu –
og hvers vegna ekki að hafa hana stórkostlega?
Skráðu þig í mánaðar- eða ársáskrift,
þitt er valið
En það hefur vissulega ákveðna kosti í för með sér að demba sér í ársáskrift:
Aðildin þín í LMLP felur í sér:
4 hópfundir í hverjum mánuði, þar af einn VIP fundur – undir stjórn Lindu Pé, master lífsþjálfa og stofnanda LMLP, ásamt gestakennurum og LMLP teyminu.
Allir fundir eru teknir upp og aðgengilegir á innri vef.
Glænýtt samfélag á lokaðri síðu þar sem þú færð stuðning, innblástur og tengsl við aðrar konur sem eru á sömu vegferð.
Innri vefur: Aðgang að námskeiðum og upptökum af fundum á innri vef sem þú getur horft á alla daga, allan sólarhringinn (24/7), þegar þér hentar, ásamt verkfærum, vinnubókum og aukaefni sem styður við vegferð þína.
Notendavænt smáforrit fyrir símann þinn svo þú hafir LMLP með þér í vasanum, hvar og hvenær sem er.
Möguleika á að uppfæra í VIP aðild með meira efni, dýpri vinnu og mánaðarlegum fundi.
Hvenær fórstu að trúa því að lífið sem þig langar í
– sé ætlað öðrum, en ekki þér?
Kannski er þetta saga sem þú ert búin að segja þér mjög lengi og ert jafnvel ekki meðvituð um.
Þú ert án efa ekki að segja þér hana af ásettu ráði.
En sagan er þarna og hún mótar allt í kringum þig: hugsanir þínar, líðan og hvernig líf þitt er í dag.
En horfðu nú til framtíðar og sjáðu eftirfarandi
fyrir þér:
Hvernig er stórkostlegasta útgáfa lífs þíns?
-
Hvernig líður þér, hvernig er umhverfið og félagsskapurinn?
-
Viltu meiri orku, léttleika í tilveruna eða meiri spennu í lífið?
-
Viltu vera konan sem getur gengið hnarreist inn í hvaða aðstæður sem er?
-
Þráirðu dýpri samtöl, fleiri ævintýri og meiri gleði?
-
Viltu finna gleðina aftur í daglega lífinu og sjá heiminn í nýju ljósi?
-
Langar þig að opna þig fyrir nýjum upplifunum, tengslum og tækifærum sem næra þig og þínar langanir?
-
Óskarðu þess að þú gætir verið meira með fjölskyldunni þinni og notið fleiri gæðastunda með þeim sem þú elskar?
-
Dreymir þig um að byggja upp þitt eigið fyrirtæki – eða skapa starfsferil sem endurspeglar hver þú ert í dag?
-
Að breyta um stefnu, finna nýjan tilgang og njóta þess að vakna á morgnana með skýrari sýn?
-
Viltu öðlast frelsi og öryggi í fjármálum – svo þú getir bæði notið og skapað líf sem hefur raunverulega þýðingu fyrir þig og aðra?
-
Viltu hætta að standa í vegi fyrir sjálfri þér, rífa þig niður og verða í staðinn kona sem er stolt af sjálfri sér alla daga?
-
Dreymir þig um heilnæman lífsstíl?
-
Að skapa umhverfi sem lyftir þér upp – hvort sem það er heimilið þitt, daglegar venjur, eða hvernig þú klæðir þig og berð þig?
-
Langar þig að hætta að hlaupa í hringi, þar sem þú ert annað hvort að byrja af krafti eða gefast upp af því þú ert komin í yfirþyrmingu?
-
Að læra einfaldar leiðir til að skipuleggja dagana – án þess að festast í sjálfsniðurrifi og vonleysi þegar hlutirnir ganga ekki upp?
Það er kominn tími til að hætta að láta sig dreyma um æðislegt líf
og fara að skapa það sjálf.
Það gerist þegar þú uppfærir sjálfsmynd þína
– og það gerum við í LMLP prógramminu.
Sjálfsmyndin mótar lífið þitt
Þú getur aldrei öðlast meira en sjálfsmynd þín leyfir. Því heimurinn í kringum þig endurspeglar alltaf álit þitt á sjálfri þér.
Sjálfsmynd þín er hugræn mynd sem þú geymir í höfðinu á þér, sem stýrir skoðunum þínum á sjálfri þér, hvernig þú umgengst aðra, hvaða markmið þú setur þér, flíkunum sem þú velur að klæðast, stöðunum sem þú ferð á, launin sem þú þénar og í hvað þú eyðir þeim. Hvernig þú hugsar um líkamann þinn, með hverjum þú ferð á stefnumót, hverjum þú giftist og hverju þú trúir að þú getir afrekað.
Í stuttu máli er sjálfsmyndin þín það sem mótar allt líf þitt.
Hún er ástæða þess að þú getur reynt að „hugsa jákvæðar hugsanir“, en samt fundist þú vera föst þegar þér finnst þú í raun ekki eiga skilið að fá það sem þú vilt.
Hún er ástæðan fyrir því að allar þessar tilraunir til að „laga“ þig brjóta þig bara meira niður … þegar hluti af þér trúir því enn þá að þú verðir alltaf „ekki nóg“.
Og hún er ástæðan fyrir því að þér líður oft eins og dagarnir séu bara bragðlaus blanda af erfiðleikum, leiðindum og áhugaleysi.
Þegar þú ferð að lifa lífi sem er í takt við hver þú ert og hver þú vilt vera
– þá verður lífið bæði léttara og ríkara.
Þú finnur fyrir meiri gleði, meiri tengingu og upplifir árangur á þínum eigin forsendum.
Það er ekki bara markmiðin sem skipta máli – heldur hver þú verður á leiðinni.
MÁNAÐARAÐILD
Þú færð aukalega aðgang að öllum þessum námskeiðum;
-
Örnámskeið: Sjálfsmynd
-
Örnámskeið: Besti kafli lífsins
-
Örnámskeið: Lifðu án afsakana
-
Masterclass: Fínstilling á miðju ári
-
Heilsuvika
-
HBOM
-
S.Æ.L formúlan
-
Siglum í gegnum hátíðirnar
-
7 daga áætlun að vellíðan
-
Heilsufæði: 30 daga matarplan
-
Niður um 4 kíló
-
Næring og uppskriftir
-
Sjálfsmynd og fegurð
-
12 vikna planið
-
Á bakvið tjöldin með Lindu
KAUPA NÚNA → SMELLTU HÉR!
ÁRSAÐILD
Ásamt öllum neðangreindum námskeiðum þegar þú uppfærist í VIP aðild!
VIP aðild skiptist í 3 þrep:
Platínum (eftir 6 mán eða með ársaðild).*
Demantur (eftir 1 ár)**
Drottning (eftir 2 ár)***
-
VIP Masterclass: Fegurð & útlit
-
Sjálfsmynd og sjálfstraust í gegnum stíl og umhverfi *
-
Hamingjuserían *
-
Markmið og skipulag *
-
Skipulag hugar og umhverfis *
-
Að trúa nýjum hlutum *
-
Sambönd *
-
Máttur lífsþjálfunar *
-
Fjármál og farsæla konan**
-
Heillaðu umhverfi þitt **
-
28 daga Heilsuáskorun ***
-
Podcastbókin ***
-
Framúrskarandi markmið ***
JÁ TAKK EKKI SPURNING → SMELLTU HÉR!
Þú færð aðgang að námskeiðum fyrir hundruði þúsunda með aðild.
Þetta er besta fjárfestingin sem þú gerir í sjálfri þér.
Ofangreind námskeið eru innifalin í aðild og þú færð aðgang að þeim á mismunandi þrepum aðildar. Samtals verðmæti þeirra er 715.560 krónur!
Þetta er ekki spurning.
Svo þér sé unnt að opna á nýja möguleika í lífinu er lykilatriði að velja gaumgæfilega fólkið sem þú umgengst. Í LMLP færðu stuðning og hvatningu og getur deilt góðum árangri sem og ósigrum án allrar dómhörku. Í okkar einstaka samfélagi færðu svör við spurningum þínum frá konum sem hafa verið í þínum sporum og skilja þig.
Svona nærðu árangri
Af hverju fá sumar konur drauma sína uppfyllta á meðan aðrar sitja eftir og velta fyrir sér hvað fór úrskeiðis?
Það er ekki heppni. Og það er ekki vegna þess að þær séu betri eða hafi meiri tíma.
Það sem þær eiga sameiginlegt er innri drifkraftur – tilfinningalegur orkugjafi sem heldur þeim tengdum við framtíðarsýnina, knýr þær áfram framhjá ótta, sjálfsefa og vantrú.
Þær kunna að vinna með hugann, styrkja tilfinningar sínar og halda fókus – jafnvel þegar lífið verður krefjandi.
Þetta getur þú líka gert.
Þú getur lært að ná tökum á eigin huga og líðan – og öðlast það traust, sjálfsmynd og hugrekki sem þarf til að láta drauma rætast.
Því ef þú vilt skapa eitthvað nýtt sem þú hefur aldrei haft í lífi þínu, þá þarftu að breytast í þá manneskju sem þú hefur aldrei áður verið.
Í LMLP prógramminu lærirðu að þjálfa hugann til að vera framtíðarmiðuð – í stað þess að vera föst í gömlum sögum og skoðunum fortíðar.
Þú lærir að velja hugsanir sem styðja þig og koma þér nær því lífi sem þú þráir – eitt skref í einu.
Hvernig væri líf þitt ef þú litir í alvörunni á sjálfa þig sem einstaka manneskju?
Ef þú neitaðir að trúa venjulegu hugsununum þínum sem segja;
-
Ég bara get ekki verið skipulögð
-
Það er svo erfitt fyrir mig að borða rétt
-
Það er aldrei nægur tími
-
Ég þarf að léttast áður en ég ...
-
Eina leiðin til að fá það sem ég vil er mikil vinna öllum stundum
-
Fólk eins og ég eignast ekki svona hluti ég kann ekki að …
-
Ég er ekki nógu mannblendin eða áhugaverð
-
Ég gæti aldrei gengið í þessu
-
Ég kann bara ekki að fara með peninga
-
Ég held áfram að klúðra þessu
-
Ég á ekki heima hérna
-
Það er of seint
-
Ég er ekki nógu hæf
-
Það sjá allir í gegnum mig
Þess í stað myndirðu ...
Hafa áhrif á hugsanir þínar, tilfinningar og hegðun til þess að skapa nákvæmlega það sem þú vilt fá út úr lífi þínu.
Kynnast sjálfri þér í þaula - hvað þú elskar, hvað kveikir í þér, hvað fær þig til að ljóma
og hvað slekkur á þér.
Vegna þess að allt sem þú gerir er gert með sjálfsvirðingu og sjálfsást.
Vegna þess að þú ert staðráðin í að vanda þig í öllu sem þú gerir - allt frá því hvernig þú klæðir þig, hvernig þú berð þig, hvernig þú verð tímanum og hvernig þú átt í samskiptum við aðra.
Vegna þess að þú sérð sjálfa þig sem klára, magnaða, fallega og algjörlega frábæra.
Ekki einn góðan veðurdag, heldur í dag.
Í LMLP muntu:
→ Fjarlægja hindranirnar sem standa á milli þín og bestu útgáfunni af lífinu þínu með því að komast að því hvað það er sem þú raunverulega þráir og verða að konunni sem er fær um að láta það verða að veruleika.
→ Uppfæra sjálfsmynd þína og gera allt á þínum forsendum - allt frá sjálfstrausti, klæðaburði, til þess sem þú segir og hvernig þú lifir lífinu.
→ Betrumbæta allt umhverfið þitt vegna þess að heimili þitt, félagsskapurinn og staðirnir sem þú sækir ættu að vera þér innblástur.
→ Loka á andlegt og tilfinningalegt drama sem eyðir orkunni þinni, heldur þér fastri og lætur þér líða eins og það sé eitthvað að þér.
→ Lifa lífinu í stað þess að þola það bara. Upplifa meiri ánægju, meiri spennu, fleiri ævintýri eða hvað sem er. Þú færð að velja og þegar þú slæst í hópinn muntu byrja að vinna að því að láta það rætast.
→ Í LMLP muntu skuldbinda þig til að grípa til aðgerða og fylgjast með lífi þínu stækka eftir því sem sjálfsmynd þín verður öflugri.
Fyrir hverjar er LMLP prógrammið?
LMLP er fyrir:
KONUNA SEM LÆTUR SIG EKKI LENGUR NÆGJA AÐ DREYMA
Þó svo að ímyndunaraflið sé yndislegt er veruleikinn sem þú getur skapað þér svo miklu meira spennandi. Þú ert tilbúin að fá stuðning við að taka lítil og innblásin skref (og einstaka langstökk) í átt að þinni eigin útgáfu af einstöku lífi.
Og það sem meira er þá ertu tilbúin að fara að hefja lífið sem þú verður stolt af alla ævi.
KONUNA SEM VILL MEIRI FRAMFARIR
Því það eru engin lífsgæði fólgin í því að vera stöðnuð eða föst í sama farinu. Það er kominn tími til að snúa lífsorkunni þinni í átt að því að skapa þér líf sem er betra en þig hefur nokkru sinni dreymt um.
Þú munt líta til baka eftir þrjá, sex eða tólf mánuði og verða orðlaus af undrun. Ekki aðeins yfir því sem þú hefur áorkað, heldur hvernig ferlið hefur breytt þér.
KONUNA VILL UPPLIFA ALLT SEM LÍFIÐ HEFUR UPP Á AÐ BJÓÐA
Þú ætlar ekki að bíða lengur á hliðarlínunni eða halda þig til hlés. Þegar öllu er á botninn hvolft er þetta þitt líf og þú ferð með aðalhlutverkið.
Þú ert tilbúin að beina kastljósinu að löngunum þínum og þörfum. Þú vilt meira af öllu því sem þú elskar. Meiri tilhlökkun og meiri tíma til að skapa minningar sem þú munt varðveita það sem eftir er ævinnar (ásamt nokkrum meiriháttar sögum).
KONUNA SEM VILL AUKNA VELLÍÐAN
Vegna þess að þú getur búið til allt sem þú vilt, hvar sem þú ert. Hvort sem þú ert að vaska upp eða njóta dýrindis fimm rétta kvöldverðar undir stjörnubjörtum himninum.
Hvort sem það eru nýafskorin blóm á eldhúsborðinu, eða einstök augnablik sem fá þig til að standa á öndinni, þá ertu reiðubúin að sáldra meiri töfrum í tilveruna.
KONUNA SEM ER TILBÚIN AÐ HITTA STÓRKOSTLEGUSTU ÚTGÁFUNA AF SJÁLFRI SÉR
Vegna þess að þú veist að það munur á milli þess sem þú ert fær um að gera og þess sem þú gerir. (Og þú hefur áttað þig á því að sjálfsniðurrif er aldrei lausnin.)
Þú ert tilbúin að lifa lífinu eins og kona sem trúir því að hún eigi skilið allt sem hún þráir og veit að hún er mikið meira en nóg. Hún er meira að segja stórkostleg.
KONUNA SEM ER ORÐIN ÞREYTT Á AÐ VERA ÓVISS OG ÓÖRUGG
Vegna þess að kona sem veit að hún stendur alltaf með sjálfri sér er aldrei óviss. Hún er forvitin, skapandi og tilbúin að mæta hverju sem verður á vegi hennar.
Þú ert hætt að efast um sjálfa þig og ert tilbúin að verða konan sem ákveður að láta vaða án þess að láta einhverja fullkomnunaráttu
stöðva sig.
Það er í þínum höndum að skapa þitt líf
og í LMLP muntu fínstilla, göfga og klippa til vegferðina þína
í átt að einhverju mögnuðu.
Ef þú hefur einhvern tímann velt því fyrir þér hvort það sé í lagi að langa í það sem þig langar í …
Að sækjast eftir fallegu og spennandi lífi …
Að taka séns og upplifa meira.
Meiri fegurð, meiri ævintýri, meiri lúxus,
meira af því sem kveikir í þér …
Þá er svarið nei.
Það er ekki í lagi.
Það er bráðnauðsynlegt!
Nema þú viljir vakna einn daginn og átta þig á því að þú hefur lifað lífinu á sjálfstýringu – eða eftir skilgreiningu einhvers annars á því hvernig þú eigir að vera.
Í LMLP lærir þú að hætta að stjórnast af því hvað öðrum finnst og láta ekki aðra taka ákvarðanir fyrir þig.
Hafnaðu því að fljóta sofandi í gegnum lífið.
Þú átt bara eitt líf.
Svo við skulum gera eitthvað stórkostlegt úr því.
Skráðu þig í dag – og byrjaðu að skapa lífið sem þig raunverulega langar í.
Skrá mig núna!
Því betur sem þér líður,
því betra lífi lifðirðu
Skráðu þig í aðild núna.
Þú hefur engu að tapa.
Opnaðu á möguleika þína
-og leyfðu þér að verða agndofa.
Við skulum allar vera dæmi um það sem er mögulegt.
SKRÁ MIG Í LMLP PRÓGRAMMIÐ
„Ég er kraftaverkakona-
lífið hefur tekið stakkaskiptum
Nú þegar ég sit hér og skrifa þessi orð þá er ég akkúrat búin að vera í prógramminu hennar Lindu í 4 ár, orðin drottning.
Eftir þessi 4 ár er ég er enn þeirrar skoðunar að þetta er það besta sem ég hef gert fyrir mig,
fyrir mér er þetta lífsstíll sem ég hreinlega elska að lifa.
Ég hef gjörbreytt sjálfsmynd minni og hreinlega umturnað henni afþvi að ég lærði í LMLP að taka valdið til mín, ég hanna mitt líf eins og ég vil hafa það.
Í dag elska ég þá konu sem ég er og því lífi sem hún lifir.
Þar sem mér fannst þetta svo mögnuð fræði, því tók ég þá ákvörðun að skrá mig í Lífsþjálfaskólann hjá henni Lindu, ég sé ekki eftir því.
Líf mitt hefur tekið enn meiri stakkaskiptum, í raun er ég endurfædd í annað sinn síðan ég byrjaði í prógramminu.
Því segi ég enn og aftur:
„Elsku konur, þið sem eruð ekki í prógramminu hjá henni Lindu skráið ykkur í LMLP prógrammið eða í Lífsþjálfaskólann þið sjáið ekki eftir því, því get ég lofað!"
Sigríður Sigmundsdóttir
62 ára, húsmóðir og nemandi í lífsþjálfun
Alda Rós Jensen
„Mér leið illa og var ekki með neitt sjálfstraust, var bara búin að týna sjálfri mér.
Mér líður mun betur í dag og vinn þetta á mínum hraða og held ótrauð áfram.”
Þórný Jóhannsdóttir
„Ég var oft pirruð inn í mér og fannst ég ekki vera sú kona sem ég vildi vera og var of þung. Eftir að ég skráði mig í LMLP, sá ég að það er hægt að breyta hugsunarhættinum í betri og jákvæðari hugsun. Núna ræð ég við flestar tilfinningar, því stundum var lífið alger tilfinningarússíbani.
Ég sit betur í sjálfri mér er rólegri og yfirvegaðri.”
Ef þú vilt árangur eins og þessar konur, skráðu þig þá núna!
Sjáumst inn í LMLP prógramminu
Sólrún Ósk Gestsdóttir
„Með uppkomin og sjálfstæð börn, fannst mér tilgangi mínum næstum lokið í lífinu. Börnin og fjölskyldur þeirra sem öll eru dásamleg sjá um sig.
Mér fannst ég of ung til að setjast í helgan stein og vantaði meiri tilgang.
Setningin sem Linda sagði
„Þú ert aldrei of gömul til að eiga besta hluta ævi þinnar” vakti mig af þessu tilgangsleysi.”
Áshildur Jónsdóttir,
60 ára lögfræðingur
„Það sem mér finnst ég hafa upplifað og lært á því að vera í LMLP er hugsanastjórnun og ég hef áttað mig á því hvernig hugurinn platar mann.
Ég hef lært að tileinka mér sjálfstraust og hvernig ég get ákveðið árangur dagsins. Ég er mjög mikið fyrir að skipuleggja útkomu hvers verkefnis og það sem Linda kennir eru akkúrat verkfærin til að geta gert það.
Það sem áður hafði vafist fyrir mér svo árum skipti er horfið og ég þarf ekki lengur að ræða eða hugsa um það, sem er ótrúleg upplifun!
Í stuttu máli sagt er lífið allt
einfaldara og skýrara.“
Ef þú vilt árangur eins og þessar konur, skráðu þig þá núna, áður en það lokar aftur!
Elín Káradóttir, 34 ára, fasteignasali
og eigandi Byr fasteignasölu
„Orðin betri stjórnandi"
„Mér finnst að allar konur eftir tvítugt ættu að koma í LMLP Prógrammið því þá hafa þær svo mikinn tíma framundan til þess að læra aðferðir til að lifa sínu besta lífi. Ég er búin að kafa djúpt og læra margt um sjálfa mig í LMLP prógramminu.
Ég var búin að fara á mörg námskeið áður, sem hafa virkað, nema hvað hausinn á mér fór fljótt eitthvað annað. Það sem ég hef lært í LMLP prógramminu er að ná taki á hugsunum mínum - þar liggur munurinn, og með verkfærunum sem ég hef fengið get ég ákveðið hvert ég stefni.
Ég hef einnig lagað mikið til í fyrirtækinu og er orðin betri stjórnandi með því að gera þessa vinnu með Lindu“
Þú ert með spurningar,
ég hef svörin
Hvernig virkar LMLP prógrammið?
Hvað er hugsanastjórnun og hvers vegna er hún mikilvæg?
Hversu lengi er LMLP prógrammið?
Er sérstök samfélagssíða fyrir LMLP konur?
Hvað kostar LMLP prógrammið?
Hef ég aðgang að Lindu?
Fyrir hverja er LMLP prógrammið ekki?
Hvað er lífsþjálfun?
Ásta Kristín Björnsson, 72 ára kennari
á eftirlaunum
„Þegar ég byrjaði var áherslan þyngdartap og að tileinka sėr grunnreglurnar fjórar. Ég hef upplifað og lært svo ótal margt annað en bara það sem varðar þyngdartap því í LMLP prógramminu er mikil áhersla á vinnu með sjálfsmyndina.
Það væri of langt mál að telja upp allt sem ég hef lært og unnið með í Prógramminu því Linda kemur inn á svo marga og spennandi þætti. En ef ég ætti að nefna nokkur atriði sem hafa gildi fyrir mig og hafa gert mikið fyrir mig er það þessi mikla vinna með hugsanir; að vera meðvituð um hvernig þær hafa áhrif á líðan mína og hvað ég geri eða geri ekki og hvernig ég get breytt hugsunum ef þær eru ekki að þjóna mér.
Líka það að sýna mér kærleika og mildi, taka ábyrgð á líðan minni, standa með mér, sinna mér og taka frá tíma fyrir sjálfsrækt. Dreyma stóra drauma, rækta draumana mína og stækka sjóndeildarhringinn.
Skipulagning og markmiðasetning er það sem mér finnst skemmtilegast að vinna með núna. Ég var ágætlega skipulögð en það sem Linda hefur kennt okkur í Prógramminu hefur sett þessa þætti hjá mér á miklu hærra plan.
Linda hefur það að markmiði að fara fram úr okkar björtustu vonum
og það hefur henni sannarlega tekist.“
Edda Guðsteinsdóttir, 56 ára,
starfar í fiskvinnslu
„Ég hef upplifað miklar breytingar hjá mér, bæði andlega og líkamlega. Ég setti mér það markmið að léttast um 10 kíló en þau eru orðin 16 þannig að þetta hefur farið fram úr mínum björtustu vonum.
LMLP prógrammið var bara akkúrat það sem mig vantaði í líf mitt. Mér hefur fundist þetta skemmtilegt og fræðandi frá fyrsta degi, sjálfsmynd mín hefur batnað mjög mikið, ekki veitti nú af, og þar ætla ég að bæta mig enn frekar.
Líf mitt hefur einfaldlega allt breyst til hins betra; ég hef náð mjög góðum tökum á mínum matarvenjum með því að skrifa niður matarplan fyrir daginn á hverjum morgni og fara eftir því. Ég er duglegri að skipuleggja mig og setja mér markmið. Svo hlusta ég flesta daga á einhvern fróðleik á innri vef prógrammsins. Það er einmitt svo gott að geta hlustað þegar mér hentar og allt í LMLP er svo vel skipulagt og aðgengilegt.
Þetta er líka bara svo frábær félagsskapur að vera í, með þessum konum.
Takk fyrir mig!“
Join Our Free Trial
Get started today before this once in a lifetime opportunity expires.