Þú framúrskarandi LMLP kona!
Komdu með okkur til Madríd, höfuðborgar Spánar,
á ráðstefnuna:
Framúrskarandi konan 2026
Skilmálar LMLP slf. fyrir bókun á ráðstefnuna Framúrskarandi konan 2026
Innifalið
Kokteilboð, ráðstefna (föstudag & laugardag) og óvæntur viðburður á sunnudegi
Verð
Verð er kr. 145.000
Greiðsla
Þú hefur val um að staðgreiða eða að skipta greiðslu í tvennt eða fernt. Þær sem hafa áður greitt 15.000 kr. forskráningargjald fá það greitt upp í gala dinner á lokakvöldinu.
Afpöntun og endurgreiðsla
2-4 mánuðum fyrir brottför: 50% af heildarverði fæst endurgreitt*. Minna en 60 dögum fyrir brottför: Engin endurgreiðsla. * 15.000 kr. staðfestingargjald er óendurkræft.
Flugbókun
Flug er EKKI innifalið í þessu verði og bókar hver og ein fyrir sig.
Dags: 30. apríl - 3. maí 2026
Gisting. Gisting er ekki innifalin og sér hver og ein um að bóka sína gistingu.
Myndataka
Myndir og myndbönd verða tekin á ráðstefnunni og með því að bóka þig samþykkir þú að LMLP slf. hafi fullt og ótakmarkað leyfi til að nýta myndefnið í markaðsefni, sem verður gert á smekklegan hátt þannig að það komi vel út fyrir alla aðila.
Forfallagjald
Hvorki forfallagjald né ferðatryggingar eru innifaldar í upphæðinni. Viðskiptavinum er ráðlagt að hafa samband við sitt tryggingafélag eða kortafyrirtæki til að fá viðeigandi upplýsingar um tryggingar.
Aflýsing vegna ófyrirsjáanlegra atburða/ Force majuere
Ef upp koma atburðir eða aðstæður sem telja má ófyrirséða og eru þess eðlis að LMLP slf. beri ekki ábyrgð á og getur ekki komið í veg fyrir atburðinn, ber fyrirtækið enga ábyrgð á afleiðingum slíkra aðstæðna/atburða. Í þessu samhengi gæti meðal annars verið um að ræða stríð, óveður, heimsfaraldur eða aðrar aðstæður sem gera það að verkum að fyrirtækinu er fyrirmunað að halda ráðstefnuna og/eða þátttakendum ómögulegt að sækja ráðstefnuna.
Ef slíkar aðstæður koma upp getur fyrirtækið afbókað ráðstefnuna án þess að þurfa að greiða skaðabætur til þátttakenda. Greiðslur vegna ráðstefnunnar er þá endurgreiðanleg til þátttakenda. Einnig er fyrirtækinu heimilt að fresta ráðstefnunni eða flytja á annan stað. Fyrirtækið skal tilkynna allar breytingar á fyrirhugaðri ráðstefnu tafarlaust.